
Vinnustofa Biodice um líffræðilega fjölbreytni
Greinargerð um þessa vinnustofu er formlega gefin út í dag, á degi líffræðilegrar fjölbreytni ásamt nýju merki Biodice.
Verkefnið Líffræðileg fjölbreytni Norðurlanda (Nordic Biodiversity Framework) fólst í rannsókn á stöðu og aðferðum Íslands, Danmerkur og Finnlands við innleiðingu á GBF. Með því að bera saman þekkingu, rannsóknir og stefnur þvert á norrænu ríkin geta þjóðirnar lært hver af annarri og starfað saman sem gagnast þeim öllum í þessari vinnu. Þrjár vinnustofur voru haldnar, ein í hverju landi, og þar komu í ljós mismunandi áskoranir.
Fyrsta vinnustofa verkefnisins var haldin hérlendis 23. apríl 2024. Komu þar saman fulltrúar úr íslenskri stjórnsýslu til að greina og ræða í víðu samhengi málefni líffræðilegrar fjölbreytni eins og hún birtist í verkefnum hins opinbera. Í hópavinnunni kom fram að líffræðileg fjölbreytni fær takmarkaða athygli í stjórnsýslunni, nema þar sem sérfræðingar í lífvísindum starfa. Þátttakendur lögðu áherslu á mikilvægi samráðs við hagaðila, betra samstarf milli stofnana og samþættingu líffræðilegrar fjölbreytni í alla stjórnsýslu. Einnig var bent á þörf fyrir að tryggja að loftslags- og skipulagsmál styðji við líffræðilega fjölbreytni og að fræðsla og aðgengi að upplýsingum skipta lykilmáli. Lagt var til að setja líffræðilega fjölbreytni í forgang, tryggja fjármagn og stofna fagráð um líffræðilega fjölbreytni til að efla samræmda stefnumótun og alþjóðlega samvinnu. Líffræðileg fjölbreytni hefur almennt ekki verið nægilega samþætt í íslensk lög og stefnur. Innleiðing markmiða GBF er takmörkuð, og ljóst er að Ísland er langt frá því að ná þeim.