CAP-SHARE og líffræðileg fjölbreytni

About the CAP-SHARE project in English.

Náttúruminjasafn Íslands og Biodice eru þátttakendur í verkefninu CAP-SHARE: Byggjum brýr á milli vísindafólks, stefnumótenda og samfélaga (á ensku CAP-SHARE: Building Bridges of Shared Capacity between Scientists, Policymakers, and Communities). Verkefnið hlaut styrk frá Norðurslóðaáætlun Evrópusambandsins (Interreg Northern Periphery and Arctic) sem nemur rúmum 120 milljónum króna. Um er að ræða þriggja ára verkefni sem byrjaði haustið 2024 og endar haustið 2027. Markmið verkefnisins er að valdefla ungt fólk og styrkja tengsl vísindafólks og stefnumótenda í samfélögum á norðurslóðum þegar kemur að ákvarðanatöku varðandi verndun líffræðilegrar fjölbreytni og aðgerðir gegn loftslagsbreytingum. Áhersla verður lögð á samvinnu við ungmenni og áðurnefndir hópar munu taka þátt í vinnustofum þar sem rödd allra fær að heyrast.

Þátttakendur í verkefninu eru Náttúruminjasafn Íslands, Selasetrið, Húnaklúbburinn og sveitarfélagið Húnaþing vestra ásamt samtökunum Arctic Frontiers í Noregi og Háskóla Lapplands í Finnlandi. Vinnan mun fara fram að hluta til í netheimum en einnig verða vinnustofur og ráðstefnur haldnar í hverju landi fyrir sig þar sem þrjú þemu munu liggja til grundvallar:

  • Byggja brýr á milli samfélaga, stefnumótenda og vísindafólks
  • Hvernig taka skuli tillit til sjónarhorna þvert á kynslóðir heimafólks
  • Fá ungt fólk til að taka þátt í og hafa áhrif á staðbundnar aðgerðir allt frá hugmyndum að stefnumótun

Verkefnið byggir að hluta til á eldra verkefni sem Jessica Aquino, dósent við ferðamáladeild Háskólans á Hólum, leiddi og nefndist Youth for Arctic Nature. Jessica mun einnig vinna við nýja verkefnið ásamt Cécile Chauvat en hún var ráðin til Náttúruminjasafnsins sem starfsmaður verkefnisins og verður með starfsstöð á Hvammstanga. Ragnhildur Guðmundsdóttir og Rannveig Magnúsdóttir koma að verkefninu fyrir hönd Náttúruminjasafnsins og Biodice.

CAP-SHARE verkefnið stóð fyrir röð rafrænna vinnustofa veturinn 2024-2025 sem hver og ein fjallaði um mismunandi aðgerðir í þágu verndar líffræðilegrar fjölbreytni á norðurslóðum. Fulltrúar Biodice komu þar m.a. með innlegg varðandi líffræðilega fjölbreytni. Upptökur af öllum vinnustofunum eru opnar og aðgengilegar fyrir öll.