Ísland á langt í land með að ná alþjóðlegum markmiðum um verndun hafsvæða en staðan er töluvert betri á landi. Líffræðingur hjá Náttúruminjasafni Íslands segir brýnt að breyta skilgreiningu fyrir friðlýst hafsvæði og fjölga þeim.
Árið 2022 samþykktu Sameinuðu þjóðirnar alþjóðleg markmið um líffræðilega fjölbreytni sem fela meðal annars í sér verndun 30% land- og hafsvæða fyrir 2030. Fresturinn til að ná því er nærri hálfnaður.
Á Íslandi er árangurinn á landi kominn í rúmlega 20% en á hafi er hann aðeins 2%, segir Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir, líffræðingur hjá Náttúruminjasafni Íslands.
Lesið fréttina í heild sinni hér!