Góð mæting á degi líffræðilegrar fjölbreytni

Viðburðurinn Líffræðileg fjölbreytni og staða Íslands var haldinn 22. maí kl. 13-14:30 í sal N-132 í Öskju, Háskóla Íslands. Á viðburðinum fjallaði Steinar Kaldal, sérfræðingur hjá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, um stefnu og aðgerðaáætlun Íslands um líffræðilega fjölbreytni. Guðrún Óskarsdóttir, líffræðingur á Náttúrustofu Austurlands, sagði frá verkefni sem snýr að því að þróa aðferðir við að leggja mat á líffræðilega fjölbreytni á Íslandi. Christophe Pampoulie, rannsóknastjóri á Hafrannsóknastofnun, kynnti verkefnið BioProtect sem snýr að kortlagningu hafsvæða með tilliti til líffræðilegra, menningarlegra og efnahagslegra þátta. Viðburðurinn var haldinn í samstarfi Biodice, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis og Náttúruminjasafns Íslands.

Hátt í 50 manns mættu á viðburðinn og mynduðust góðar umræður í lok erinda um verndun líffræðilegrar fjölbreytni. Við þökkum fyrirlesurum og öllum sem mættu á viðburðinn.