Vinnustofa um málefni framandi tegunda á Íslandi

Vinnustofa um málefni framandi tegunda á Íslandi verður haldin dagana 16.–17. mars næstkomandi í höfuðstöðvum Hafrannsóknastofnunar að Fornubúðum 5 í Hafnarfirði. Vinnustofan er samstarfsverkefni stofnana og sérfræðinga sem starfa að þessum málaflokki á Íslandi. 

Markmið vinnustofunnar er að efla þekkingu og samráð um stöðu framandi tegunda hér á landi, helstu áhættur til framtíðar og leiðir til forvarna og viðbragða. Fimm af fremstu sérfræðingum heims á þessu sviði taka þátt, halda erindi og leiða umræðu, ásamt íslenskum fræðimönnum. 

Á vinnustofunni verður fjallað um framandi tegundir í hafi, ferskvatni og á landi, áhættumat og stjórnun þeirra, sem og samfélagslegar og vistfræðilegar afleiðingar. Einnig verða umræður um afmörkuð málefni þar sem öllum þátttakendum gefst tækifæri á að koma þekkingu sinni og skoðun á framfæri. 

Dagskrá

Vinnustofan fer fram mánudaginn 16. mars kl. 9:45–16:40 og þriðjudaginn 17. mars kl. 9:00–16:25.

Skráningu lýkur kl. 13:00 þann 11. mars.

Skráningarform 

Mynd: Svartserkur er sjávarsnigill sem á heimkynni meðfram Kyrrahafsströnd Norður-Ameríku, frá Suður-Kaliforníu til Alaska. Hann fannst fyrst á Íslandi sumarið 2020, í fjöru í Fossvogi, og hafa nú fundist dýr og eggjasekkir víða í fjörum frá Suðurnesjum norður í Eyjafjörð. Svartserkur er framandi tegund og lítið er vitað um hvaða áhrif hún hefur á vistkerfi fjörunnar við Ísland. – Ljósm. Svanhildur Egilsdóttir